Drepin já já.

Skæruliði reyndi að ráðast á Rússneska herstöð með dróna fullum af handsprengjum, og var"drepin" af vondu Rússunum sem voru herstöðinni til varnar.

Hverskonar fréttaflutningur er þetta eiginlega, og það í mbl.is ?.

Hið rétta er að skæruliðinn féll í átökum við varðmen herstöðvarinnar, þegar hann var að reina að varpa sprengjum á herstöð, það er skömm fyrir mbl.is að láta svona þvætting frá sér á prenti, eða telja fréttamenn mbl.is að Rússar megi ekki verja hendur sínar ??.


mbl.is Drepinn fyrir að reyna að ráðast á herstöð Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef einhver annar borgar.

63% sögðust styðja aukna skattlagningu á sjávarútveginn?, en

viðurkenna um leið að hafa ekki kynt sér frumvarpið, það voru

aðeins 34% sem höfðu lesið frumvarpsdrögin??, hver fjármagnar

svona skoðanakönnun þar sem nánast er spurt hvort þú sért

sammála um að skattleggja einhvern annan  en sjálfan þig.

 

Og 63% telur að það komi vel til greina án þess að gera sér í

raun nokkra grein fyrir hugsanlegum afleiðingum, og það sem

nöturlegra er, þessu sama fólki er slétt sama þó einhver

sjáfarþorp úti á landi séu að vara alvarlega við þessum

gjörningi.

 

Þessi sömu 63% telja sennilega að allir sem standa í útgerð

græði alveg gríðarlega, en skoða aldrei hvers vegna menn sem

stundað hafa útgerð áratugum saman eru að gefast upp, og

leggja ævi starfið á hilluna vegna ásælni stjórnvalda sem kunna

sér ekkert hóf í skattlagningu, til að fjármagna óstjórn

ríkissjóðs aftur og aftur.

 


mbl.is 63% sögðust styðja áform Hönnu Katrínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tollabandalagið ESB

Evrópusambandið er tollabandalag sem stjórnmálamenn eru að

reina að gera að bandaríkjum Evrópu, hugmyndir var og er að

einangra og vernda þjóðir innan sambandsins með tollum og

virðisaukaskatti.

 

Í tilfelli USA hefur sambandið tekið um 39 prósent toll og

skatt af vörum frá USA (að sögn Trumps), og er svo að fara á

límingunumþegar USA svarar með 20 prósent toll og söluskatt sem

er í kringum 9 prósent í USA, en 20 til 27 prósent í ESB.

 

það undarlega er að það hvarflar ekki að neinum ráðamanni

ESB, að sambandið geti leyst ágreiningin með því að, lækka 

sína tolla og skatta ásamt og með að fella niður alskins

lagabálka þvergirðingar á innflutning frá USA,

eins og við Íslendingar gerum til að vernda landbúnaðinn okkar.

 

Tollastríð er eitthvað sem allir tapa á segja ráðamenn

hér lendis og berja sér á brjóst, helst dettur þeim í hug að

við þurfum að senda einhvern til USA til að koma vitinu fyrir

Bandaríkjamenn, en gleyma því í leiðinni að til þess þyrftum

við eiga einhvern með viti til að senda, miðað við

digurbarkalega yfirlýsingar ráðherra ríkisstjórnarinnar, er

lítil von úr þeirri áttini, þar á bæ snýst allt um að stiðja

við stríðsrekstur ESB, og selja löggjafarvaldið í hendur ESB.

 


mbl.is Undirbúa aðgerðir gagnvart Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað um lífeyrissjóðinna.?

Lífeyrissjóðirnir eiga milli 30 og 40 prósent í stóru

sjáfarútvegs fyrirtækjunum, ef skoðaðar eru afkomutölur

til að mynda hjá Brim, þá er stórkostlegt tap á hlutabréfum

Brims síðustu árum, hluturinn fellur úr 90,5 2023 í 67.2 núna

í mars 2025??.

það þíðir tug miljarða tap ef sjóðirnir seldu núna

þetta tap er þrátt fyrir arðgreiðslur uppá um 3 prósent árlega 

, sem vel á minnst er langt undir lögbundinni ávöxtunarkröfu 

lífeiryssjóða, þetta ætti ráðherra Atvinuveganna að vita,

en nei ráðherra mætir í sjónvarpið og

talar um að fiskvinnslan mali gull,

það tala eins og fáráðlingur fær alveg nýa merkingu hjá okkur

sumum, og er manneskjan samt ráðherra í ríkisstjórn.


mbl.is Hækkun sögð gera Ísland fátækara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara hálf sagan sögð?.

Af hverju er sleppt í upptalningunni, hvaða tollar eru lagðir á Bandaríkin af þessum þjóðum ??, ESB leggur 39% toll á USA, USA setur núna 20% toll á ESB, svona eru þessar tollaálögur Trump stjórnarinnar, USA leggur bara hálfan toll á þá sem tolla USA, er eitthvað athugavert við það að gjalda í sömu minnt??.


mbl.is Tollar Trumps: Sjáðu listann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættið að fljúga á Ísafjörð.

Það er alveg ágætis flugvallarstæði á Holtsvelli í Önundafyrði, það að en skuli vera flogið með farþega á Ísafjörð er stórfurðulegt, eftir tillkomu jarðgangana um Breiðdalsheiði.

Það að ekki hafi orðið stórslys í aðflugi á Ísafjarðarflugvöll, er bara þeim snillingum sem stýrt hafa flugvélum þangað, það er alveg skelfileg að horfa á slíkt aðflug þegar vindátt er þannig að fara þarf inn yfir Ísafjarðarbæ og fljúga meðfram hlíðum fjallana til lendingar. 

það er í raun glæpsamlegt gagnvart flugöryggi að leifa notkun á Ísafjarðaflugvelli, nema í neyðartilfellum.

Holtsflugvöllurinn er mikið betur í land settur og þyrfti ekki miklar framkvæmdir til að gagnast því svæði sem göngin um Breiðdalsheið opnuðu á sínum tíma.

Það er neyðarlegt að sjá skrif fólks sem telur að Ísafjarðarflugvöllur sé eini kosturinn, ef haft er í huga hversu hættulegt vallarstæðið er.

 


mbl.is „Alveg ljóst“ að flogið verður áfram til Ísafjarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

tínd hjöðnun

Hjöðnun verðbólgu virðist hafa farið framhjá Seðlabankanum, það er að segja frá 9 prósentum í ágúst 2023 og niður í 6 prósent í ágúst 2024, 9,25% vextir í heilt ár eru óréttanlegir við slíka lækkun verðbólgu.

 Og eins og bankastjóri segir sjálfur, þrátt fyrir 70 miljarða fasteignakaup Ríkissjóðs vegna  náttúruhamfara og nýgerða kjarasamninga, verðbólgan er samt að hjaðna, og peningar ofteknir með okurvöxtum hrúgast upp í bönkum og lífeyrissjóðum og "nota bene" þá peninga þarf að ávaxta, en að ávaxta þá um 3 til 4% umfram verðbólgu er eignaupptaka.

mér persónulega fyndist að Ríkissjóður ætti að leggja sérstakan vaxtaskatt á hagnað bankana, og þá helst að lágmarki eins og 100 milljarða, þessum peningum ætti síðan að dreifa beint á þá einstaklinga sem greiða fasteignalán með þessum okurvöxtum, það þarf að stöðva þessa einstefnu seðlabankans fyrir hönd fjármagnseigenda í vasa þeirra sem eru að reina að kaupa sér húsnæði.


mbl.is Höfum tapað 3,5 mánuðum af hjöðnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosning ógild á Selfossi.

Það að atkvæði hafi verið greitt án aðkomu þess sem á kennitöluna er glæpur sem má ekki líðast, og ógildir alla kosninguna og kjörstjórn viðkomandi svæðis, í þessu tilfelli Selfosssvæðis.


mbl.is Atkvæðinu stolið og send heim án þess að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

verðbólga rangt reiknuð segir Bjarni.

Reikanleg verðbólga er 2 til 3 prósentum of há??, hagstofa notar gallað reiknilíkan sem tekur ekki til greina , áhrif vaxtahækkana á húsaleigu, sem magna síðan hvort annað, og hafa að öllum líkindum valdið 2% til 3% hækkun vísitölu nú þegar, alvarlegast er að Seðlabankinn virðist ekki gera sér neina grein fyrir þessu og hækkar bara aftur og aftur og skilur ekki neitt í neinu, komin er tími á að skipta um men í brúnni hjá Seðlabankannum, og fara strax í að greiða þeim skaðabætur sem hafa orðið fyrir tjóni að völdum handvamar Hagstofu og Seðlabanka. 


mbl.is Sér ekki fram á vaxtalækkun strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað kostar svo klúður Svandísar.

Hve há verður réttmæt skaðabótakrafa Hvals.hf á hendur Ríkisvaldsins, hleipur vafalaust á milljörðum, en Ríkissjóður á ekki að borga því það eiga Vinstri gænir að gera, þeirra ráðuneiti, Katrín á ekki að geta afsakað að gera ekki neitt þegar Svandís tók æðiskastið, og ekki getta meðhlæjendur hennar í Ríkisstjórn afsakað sig heldur, afsögn-eða brotrekstur Svandísar úr Ríkisstjórn væri lágmarks kurteisi við þjóðinna, enn sjáum hvað setur.


mbl.is Vertíðinni lokið: 24 hvalir veiddir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Umræðan

Höfundur

Magnús Jónsson
Magnús Jónsson

Ég aðhyllist þá kenningu að allir menn eigi rétt á því að hafa rangt fyrir sér öðru hverju, og það að gera mistök er mannlegt. En hvorugt má gera án þess að viðurkenna það og bæta fyrir ef nokkur kostur er.

Vil ekki hafa fólk á mínum vinalista sem ekki leifir athugasemdir við það sem það skrifar, tel það takmarka tjáningu og skoðanaskipti, sem ég tel vera einn stærsta kost við Bloggið.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • flug-bessas hugmynd
  • IMG 0361
  • Höfnin í Stikkishólmi
  • Í Grundarfyrði
  • Ólafsvíkurhöfn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 6
  • Sl. sólarhring: 38
  • Sl. viku: 131
  • Frá upphafi: 60640

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 115
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband
OSZAR »